BM Vallá steypubíll - Leiktæki

Dagsetning
Jun 2026
Staðsetning
Þjónusta

BM Vallá hafði samband við okkur í vetur með þá ósk að setja upp sérhannað leiktæki frá Tiptiptap við höfuðstöðvar sína. Eftir hugmynda- og hönnunarvinnu í samstarfi við hönnunardeild Tiptiptap varð niðurstaðan glæsilegur steypibíll sem nú er kominn á sinn stað.

‍

Nánar um leiktækið:

• Hliðar- og skreytingarpanilar úr UV-þolnum HDPE plastplötum.

• Burðarvirki úr heitgalvaniseruðu stáli.

• Sýnilegir stálhlutar eru duftlakkaðir fyrir aukna endingu og fallegt útlit.

• Öll lógó og sérmerkingar: CNC-fræst í panila.

• Slitfletir, svo sem pallar og tröppur, eru húðaðir með tveggja þátta elastómerplasti sem er bæði mjög slitþolið og hálkuvarið.

• Galvaniseraðir boltar og ryðfríar skrúfur á sýnilegum stöðum.

• Öryggislok yfir boltahausum til að draga úr meiðslahættu.

Leiktækið er hannað til að standast íslenskar aðstæður og krefst lágmarks viðhalds.

‍

Engar myndir
Fyrirspurnakarfa
Karfan þín er tóm
Þú virðist ekki hafa bætt neinu í körfuna þína. Þú getur skoðað vörur frá TipTipTap og Flexizone