Tiptiptap 3 ára

Dagsetning
Oct 2026
Staðsetning
Um allt land
Þjónusta
Uppsetning á Leiktækjum

TIPTITPTAP 3 ÁRA

Fyrir þremur árum lögðu Grjótgarðar leið sína til Eistlands, í höfuðstöðvar Tiptiptap, og sneru heim sem umboðsaðili Tiptiptap á Íslandi.

Leiktæki Tiptiptap urðu fljótt vinsæl hér á landi og á þessum þremur árum höfum við öðlast mikla reynslu og þekkingu á vörunum og uppsetningu þeirra.

Frá upphafi höfum við boðið upp á bæði samsetningu og uppsetningu leiktækjanna. Við tókum jafnframt í gagnið verkstæði fyrir uppsetningu og viðhald og höfum byggt upp lager af bæði leiktækjum og íhlutum. Fljótlega fjárfestum við einnig í sérhæfðum vinnubíl, fullbúnum varahlutum og sérhæfðum verkfærum fyrir leiktækin.

Sérstaða Tiptiptap

Ein af okkar helstu áherslum hefur frá upphafi verið að bjóða upp á vönduð og viðhaldslítil leiktæki á hagstæðu verði.

Stoðirnar eru úr dufthúðuðu áli og allir pallar og stigar eru húðaðir með slitsterku plasti sem eykur endingu og líftíma leiktækjanna til muna.

Önnur sérstaða okkar er möguleikinn á sérsmíðuðum, laserskornum spjöldum. Þar má til dæmis setja merki eða lógó skóla, leikskóla eða annarra viðskiptavina. Möguleikarnir eru nánast endalausir og þannig er hægt að gefa hverju leiktæki persónulegan svip.

Við höfum tekið saman brot af þeim leiktækjum sem við höfum sett upp víðs vegar um landið á þessum þremur árum.

Við þökkum kærlega fyrir traustið og þessi fyrstu þrjú ár – og hlökkum til framhaldsins!

‍

Engar myndir
Fyrirspurnakarfa
Karfan þín er tóm
Þú virðist ekki hafa bætt neinu í körfuna þína. Þú getur skoðað vörur frá TipTipTap og Flexizone